Þjónusta
Rafmagnstöflur og stjórnskápar
Kaplar tekur að sér töflusmíði, breytingar á rafmagnstöflum og vinnu við stjórnskápa.
Töflur og stjórnskápar eru lykilhluti rafkerfa. Þau þurfa að vera skýr, örugg, aðgengileg og rétt merkt. Við leggjum áherslu á faglegan frágang og lausnir sem henta bæði húsnæði, rekstri og iðnaðartengdum verkefnum.
Fyrir hverja
Fyrirtæki, verktakar, iðnaður, stofnanir og húsfélög sem þurfa nýjar töflur, breytingar eða stjórnskápa.
Dæmi um verkþætti
- Töflusmíði
- Breytingar á rafmagnstöflum
- Vinna við stjórnskápa
- Merkingar og frágangur
- Tengingar við stýringar og búnað
- Ráðgjöf og tilboðsgerð
Spurt og svarað
Smíðið þið töflur eftir teikningum?
Já. Við vinnum eftir teikningum og gögnum sem liggja fyrir, og getum einnig aðstoðað við hönnun og teikningar.
Getið þið endurnýjað gamla rafmagnstöflu?
Já. Við tökum að okkur breytingar og endurnýjun á töflum og förum yfir aðstæður áður en verk er unnið.
