Fara í meginmál

Þjónusta

Hleðslustöðvar

Kaplar aðstoðar við ráðgjöf, uppsetningu og frágang hleðslustöðva.

Rétt uppsetning hleðslustöðvar þarf að taka mið af rafkerfi, notkun, öryggi og mögulegri framtíðarþörf. Við förum yfir aðstæður og leggjum til lausn sem hentar atvinnuhúsnæði, rekstri eða fjölbýli.

Fyrir hverja

Fyrirtæki, rekstraraðilar, húsfélög og stofnanir sem þurfa hleðslulausnir.

Dæmi um verkþætti

  • Ráðgjöf um hleðslulausnir
  • Uppsetning hleðslustöðva
  • Undirbúningur raflagna
  • Breytingar á töflum ef þarf
  • Frágangur og prófun
  • Lausnir fyrir atvinnuhúsnæði, fyrirtæki og fjölbýli

Spurt og svarað

Þarf að breyta rafmagnstöflunni fyrir hleðslustöð?

Það fer eftir aðstæðum. Við skoðum töfluna og raflagnir og segjum til um hvort breytinga er þörf áður en verkið er unnið.

Setjið þið upp hleðslustöðvar í fjölbýli?

Já. Við aðstoðum húsfélög og fyrirtæki við undirbúning og uppsetningu hleðslulausna.

Hafa samband um hleðslustöð