Þjónusta
Hönnun, teikningar og verkefnastýring
Kaplar kemur að undirbúningi og utanumhaldi rafverkefna með hönnun, teikningum, tilboðsgerð og verkefnastýringu.
Skýr undirbúningur sparar tíma í framkvæmd. Við aðstoðum við að móta lausn, setja upp gögn og halda utan um verkefni þannig að rafverkið verði markvissara frá byrjun til enda.
Fyrir hverja
Verktakar, framkvæmdaraðilar, fyrirtæki og stofnanir sem þurfa gögn, skipulag og utanumhald á rafhluta verkefnis.
Dæmi um verkþætti
- Raflagnahönnun
- Raflagnateikningar
- Tilboðsgerð
- Verkefnastýring
- Ráðgjöf á undirbúningsstigi
- Samhæfing við framkvæmdaraðila
Spurt og svarað
Getið þið tekið að ykkur hönnun án framkvæmdar?
Já. Við getum komið að hönnun, teikningum og ráðgjöf óháð því hvort Kaplar vinnur framkvæmdina sjálfa.
Hvaða gögn er gott að senda með fyrirspurn?
Teikningar, myndir af aðstæðum, lýsing á umfangi og upplýsingar um tímaramma.
